Reginn ehf., auglýsir eftir tilboðum í breytingar og endurbætur á skrifstofubyggingu að Borgartúni 33 í Reykjavík. Verkið felst í breytingum á núverandi húsnæði, u.þ.b. 1.800 m2 innanhúss, múrbroti og rifi, styrkingum burðarvirkis ásamt byggingu einnar hæðar ofan á núverandi byggingu auk stigahúss. Jafnframt er innifalið í útboðinu endurnýjun utanhússklæðningar og ísetning glugga.
Útboðsgögn er hægt að nálgast frá og með miðvikudeginum 16. nóvember 2011 á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar, utbod.vso.is
Tilboðum skal skila eigi síðar en kl.: 14:00 þann 30. nóvember 2011 til skrifstofu VSÓ Ráðgjafar, Borgartúni 20, 105 Reykjavík.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.