Almennar fréttir / 24. maí 2013

Tilkynning um undirritun á kaupsamning á fasteignafélagi

Undirritaður var í dag 24. maí, kaupsamningur milli Regins hf. og eigenda fasteignafélagsins Summit ehf. um kaup á félaginu. Kaupsamningurinn er með fyrirvara um samþykki stjórnar Regins hf. sem og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fasteignir Summit eru eftirfarandi :

Íshella 8 í Hafnarfirði, Vesturvör 29 og Hlíðasmára 1 í Kópavogi , hlutdeild í Vatnagörðum 16-18 og hlutdeild í Funahöfða 19 í Reykjavík.

Heildarstærð fasteigna er alls 15.500 m2 og eru leigutakar alls 12. Helstu leigutakar eru Promens hf., Penninn ehf., Jarðboranir hf., Lyfja hf. og Trésmiðja GKS ehf.

Við kaupin stækkar eignasafn Regins um 9%. Kaupin eru í samræmi við fjárfestingastefnu Regins hf. sem fela í sér markmið að auka hlutdeild í skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði og stækkun með innri vexti og fjárfestingu í arðbæru atvinnuhúsnæði.

Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif kaupanna ef af verða eru áætluð um 10% aukning á EBITDA Regins hf.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.