Föstudaginn 10. desember voru opnuð tilboð í verkið Suðurlandsbraut 14 – Endurgerð. Á grundvelli forvals voru valdir fimm aðilar til þess að bjóða í verkið. Um var að ræða lokað útboð á hönnun og framkvæmd sem miðar að því að endurinnrétta húsnæðið undir starfstöðvar Íslandsbanka. Óskað var eftir tilboðum í tvær tilhaganir verksins en einnig var óskað eftir kostnaðarvísbendingu um viðbótarstækkun allt að 700 m2.
- Tilhögun 1 – Endurinnrétting og endurnýjun utanhúss á núverandi skrifstofuhúsi ásamt því að rífa bakhús, endurbæta lóð og stækka bílastæði.
- Tilhögun 2 – Sama og í tilhögun 1 auk þess sem byggja á eina hæð ofan á núverandi hús, um 570 m2 sem skila á fullbúinni að innan og utan.
- Frekari stækkun hússins – Óskað er eftir hugmynd frá bjóðendum um 5 – 700 m2 viðbótarstækkun sem æskilegt er að rúmist innan núverandi deiliskipulagsramma. Hvort það fellst í byggingu 5. hæðar ofan á húsið eða öðrum útfærslum, er óbundið af hálfu verkkaupa.
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið, tölur eru með VSK:
Tilhögun 1 | Tilhögun 2 | Kostnaðarvísbending um frekari stækkun | ||
ÍAV hf. | aðaltilboð | 288.948.675 kr. | 382.339.691 kr. | 470.000.000 kr. |
SS verktakar | aðaltilboð | 347.441.465 kr. | 458.159.465 kr. | a. 579.901.465 kr. |
SS verktakar | frávikstilboð | 286.080.500 kr. | 419.923.466 kr. | b. 646.901.465 kr. |
JÁ verk | aðaltilboð | 352.753.664 kr. | 450.034.616 kr. | |
JÁ verk | frávikstilboð | 305.867.345 kr. | 399.112.981 kr. | |
Eykt ehf. | aðaltilboð | 356.139.911 kr. | 482.868.405 kr. | +120.000.000 kr. |
ÍSTAK hf. | aðaltilboð | 389.637.768 kr. | 498.546.281 kr. | |
ÍSTAK hf. | frávikstilboð | 361.568.549 kr. | 471.637.977 kr. |
Nú standa yfir skýringarviðræður með lægstbjóðendum. Stefnt er að því að ljúka yfirferð tilboða, vali á verktaka og gerð verksamnings innan tveggja vikna frá opnun tilboða.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.