Regin undirritaði kaupsamning um kaup á Klasa fasteignum þann 21. desember 2013 sem innihélt m.a. fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið hefur nú birt niðurstöðu sína, en samkvæmt henni telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til að hafast frekar að vegna samruna Regins og Klasa fasteigna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. Allir fyrirvarar kaupsamningsins frá 21. desember 2013 eru því uppfylltir og uppgjör og afhending vegna viðskiptanna mun fara fram á næstu dögum. Samhliða kaupum verður nafni hins keypta félags breytt í RA 5 ehf.
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Regins hf. á Klasa fasteignum ehf.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.