Dótturfélag Regins hf. og Keahótel ehf. hafa undirritað leigusamning um fasteignina Austurstræti 16, Reykjavík. Fasteignin sem Reginn samstæðan festi nú nýverið kaup á er alls 2.773 m2 að stærð. Fyrirhugað er að í húsinu verði innréttað og rekið glæsilegt hótel ásamt veitingastað sem hæfa mun yfirbragði og sögu hússins . Reginn hf. mun sjá um og stýra framkvæmdum á húsinu. Gert er ráð fyrir að rekstur geti hafist í lok næsta sumar.
Keahótel ehf. eru nú þegar einn af stærri leigutökum Regins en þeir leigja einnig Hótel Kea á Akureyri. Lagt var í umfangsmiklar endurbætur á Hótel Kea í sumar og er hótelið í dag eitt af þeim glæsilegri á landinu. Keahótel ehf. reka einnig Hótel Norðurland á Akureyri, Hótel Gíg á Mývatni og í Reykjavík; Hótel Borg, Hótel Björk og Reykjavík Lights.
„Við erum mjög ánægð með að hafa náð samningum við Keahótel því um er að ræða rekstraaðila með mikla reynslu og sérþekkingu á þessu sviði . Sömuleiðis eru aðilar sammála um að varðaveita og hafa að leiðarljósi við hönnun og breytingu innanhúss þann fágaða og glæsilega stíl sem húsið býður upp á segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins hf.“
„Um er að ræða mikilvægt skref fyrir rekstur Keahótela að hafa náð leigusamningi um Austurstræti 16. Keahótel er nú þegar með hótel rekstur í samliggjandi eignum þ.e. Hótel Borg og með því er komin rekstrarleg samfella milli allra húsanna í lengjunni frá Hótel Borg til og með Austurstræti 16. Þetta gefur okkur mikla möguleika í framtíðinni að tengja rekstur þessar hótela saman og samnýta ýmsa rekstraþætti. Við horfum því bjartsýn til framtíðarinnar og hlökkum til að starfa með Reginn í þessu verkefni sem er framundan segir Páll L. Sigurjónsson framkvæmdastjóri Keahótel.“
Sjá frekari upplýsingar um Keahótel á heimasíðu félagsins; http://www.keahotels.is
Áætluð aukning á EBITDA Regins samstæðunnar vegna útleigu á Austurstræti 16 er rúmlega 4% miðað við útgefna rekstraáætlun 2014.

Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
