Þann 14. febrúar s.l. sendi Reginn, frá sér tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum.
Þegar hefur verið tilkynnt um kaup á þrem af fjórum fasteignafélögunum.
Undirritaður var kaupsamningur milli Regins og Vist ehf. í dag, 26. september og hefur þá verið gengið frá kaupum á öllum fasteignafélögum sem var getið í fyrrnefndri tilkynningu. Fasteignir Vist eru Ármúli 4 og 6 í Reykjavík, Kaupvangur 3b, Fljótdalshéraði, auk hluta í Austurveg 10, lóð við Austurveg 8a, Árborg og Hafnarstræti 1, Ísafirði. Stærð eignarhlutar fasteigna félagsins er um 4.200 m2.
Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.