Almennar fréttir / 16. október 2014

Reginn hf. kaupir Skipagötu 9 á Akureyri

Dótturfélag Regins, þ.e. Reginn Atvinnuhúsnæði hefur keypt Skipagötu 9 á Akureyri af dótturfélagi í eigu Íslandsbanka hf.

Skipagata 9 er afar vandað og gott atvinnuhúsnæði á fjórum hæðum í hjarta Akureyrar. Sá hluti sem Reginn hefur keypt er 1.223 m2 og í fullri útleigu hjá traustum leigutökum.



Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.