Stjórn Regins ákvað á fundi sínum þann 28. apríl 2014 að nýta heimild í 4. gr. samþykkta félagsins og hækka hlutafé í Regin um 128.700.000 krónur að nafnverði á genginu 13,63 krónur á hlut. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Bréfin eru gefin út í tengslum við kaup félagsins á 100% hluti í Klasa fasteignum ehf. Hlutafjáraukningunni verður ráðstafað sem greiðslu fyrir hlutafé í Klasa fasteignum ehf. í samræmi við kaupsamning þar að lútandi dags. 21. desember 2013. Samhliða kaupum verður nafni hins keypta félags breytt í RA 5 ehf.
Hlutafé í Regin fyrir hlutafjáraukninguna er 1.300.000.000 krónur að nafnvirði en verður að henni lokinni 1.428.700.000 krónur að nafnvirði. Regin á ekki eigin hluti. Hinir nýju hlutir veita réttindi í Regin frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar hjá Fyrirtækjaskrá.
Eigendur Klasa fasteigna eru tveir, Sigla ehf. og Stotalækur ehf. Sigla, sem er í jafnri eigu Tómasar Kristjánssonar og Finns Reyrs Stefánssonar, mun eignast 8,56% hlutafjár í Regin við hlutafjárhækkunina og Stotalækur ehf., sem er í eigu Ingva Jónassonar, mun eignast 0,45% hlutafjár í Regin við hlutafjárhækkunina. Sigla hefur skuldbundið sig til þess að selja ekki þá hluti sem Sigla fær afhenta í Regin í 9 mánuði frá afhendingardegi. Ekki gildir sölubann um hluti Stotalæks í Regin.
Eftirfarandi er listi yfir 10 stærstu hluthafa í Regin eftir hlutafjáraukninguna:
Lífeyrissjóður verslunarmanna |
Sigla ehf. |
Gildi - lífeyrissjóður |
Stefnir - ÍS 15 |
Íslandsbanki hf. |
Stapi lífeyrissjóður |
Íslandssjóðir - IS Hlutabréfas |
Landsbréf - Úrvalsbréf |
Sameinaði lífeyrissjóðurinn |
Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild |

Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
