Reginn mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2013, eftir lokun markaða mánudaginn 26. ágúst 2013.
Af því tilefni býður Reginn til opins kynningarfundar þriðjudaginn 27. ágúst 2013 kl. 8:30 í verslunarmiðstöðinni Smáralind, 1. hæð.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2013 og svarar spurningum að lokinni kynningu.
- Jóhann Sigurjónsson fjármálastjóri Regins kynnir verklag og forsendur við virðismat hjá félaginu.
- Sturla Eðvarðsson framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Smáralindar kynnir stöðu og framtíð Smáralindar.
Boðið verður upp á veitingar fyrir fund.
Hægt verður að nálgast kynningarefni að kynningu lokinni á http://www.reginn.is/fjarfestar/
Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262
Heiða Salvarsdóttir – Fjárfestatengill - heida@reginn.is - S: 512 8911 / 697 9399
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.