Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins var með kynningu á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga 1. október sl.
Í erindi hans var farið yfir skiptingu fasteignasafns Regins sem telur í dag 125 eignir eftir kaup félagsins á Fastengi í byrjun maí 2015.
Helgi fór yfir helstu kosti við að fjárfesta í fleiri fasteignum á markaði og þannig stækka félagið. Mat félagsins er að það felur í sér lægri stjórnunar- og rekstrarkostnað, hagstæðari fjármögnun og meiri styrk í markaðssetningu og útleigu. Að mati Helga hefði ný eignasamsetning góð áhrif á félagið kæmu til sveiflur á markaði.
Endurnýjun samninga hefur verið með besta móti það sem af er ári. Alls hafa verið gerðir u.þ.b. 50 samningar sem fela annaðhvort í endurnýjun eða nýja samninga innan samstæðu Regins og þar af 12 í eignum keyptum af Íslandsbanka. Um 57% af nýjum samningum hafa verið gerðir við fyrirtæki sem eiga sér meira en 40 ára rekstrarsögu.
Einnig voru rædd tækifæri á fasteignamarkaðnum.
Kynning Regins á fundi Félags viðskipta og hagfræðinga - 1. október 2015
Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
