Húsið sem er um 2.300 fermetrar hefur verið í byggingu frá 2014 og er nú orðið fullbúið og tilbúið til notkunar. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið sem án efa mun styrkja fimleikadeild Fjölnis sem verður með starfsemi í húsinu. Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson, ásamt Helga S. Gunnarssyni forstjóra fasteignafélagsins Regins hf. vígðu húsið við hátíðlega athöfn.
Reginn fasteignafélag er eigandi byggingarinnar og Reykjavíkurborg leigutaki.
Egilshöll er stærsta íþrótta- og afþreygingarmiðstöð Íslands og er heildarstærð byggingarinnar um 34 þúsund fermetrar.
Fjölbreytt starfsemi er í húsinu; SAMbíóin, Keiluhöllin, veitingastaðurinn Shake & Pizza sem opnar innan skamms, skautafélagið Björninn, World Class, Sólbaðsstofan Sælan, Skotfélag Reykjavíkur, íþróttafélagið Fjölnir og dagvistun á vegum Reykjavíkurborgar.

Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
