Hannes Frímann Sigurðsson hefur gengið til liðs við Reginn ehf. sem verkefnastjóri Laugavegsreita ehf.
Reginn ehf. skrifaði nýlega undir kaupsamninga á eignum við Laugaveg, Hverfisgötu, Smiðjustíg og Klapparstíg við Landsbanka Íslands, Folda fasteignaþróunarfélag ehf. og Festa ehf. og mun reka það safn og vinna að þróun svæðisins.
Hannes hefur áralanga reynslu af fasteignaumsýslu og vann m.a hjá Orkuveitu Reykjavíkur, er framkvæmdastjóri Fasteignastjórnunarfélags íslands og situr í stjórn BIM Ísland.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.