Almennar fréttir / 10. febrúar 2015

Nýr leigusamningur í Egilshöll

Reginn og Sólbaðsstofan Sælan hafa undirritað leigusamning um húsnæði í Egilshöll. Sólbaðsstofan hefur verið rekin í Bæjarlind í Kópavogi um margra ára skeið með góðum árangri. Stefnt er að því að sólbaðsstofan muni opna í Egilshöll í maí á þessu ári ásamt því að vera með starfsemi áfram í Kópavogi. Sólbaðsstofan Sælan er skemmtileg viðbót við þá fjölbreyttu starfsemi sem nú þegar er í Egilshöll.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.