Lífland ehf. hefur gert leigusamning um 4.000 fermetra húsnæði í Brúarvogi 1-3. Um er að ræða húsnæði fyrir verslun, lager og skrifstofu. Fyrirtækið er í dag á þremur stöðum og er áætlunin að sameina starfsemina á einn stað. Reiknað er með að flutningi og sameiningu starfseminnar í Brúarvog verði lokið í byrjun maí. Reginn hefur auglýst útboð á innréttingu húsnæðisins og verða þau opnuð í byrjun janúar.
Starfsemi Líflands lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi og útivist.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.