Reginn ehf. býður til kynningarfundar um Egilshöll, viðskiptatækifæri í henni og útboðsferlið, miðvikudaginn 25. ágúst.
Kynningin verður haldin í Egilshöll og hefst við anddyri hennar kl. 14.00.
Brátt lýkur framkvæmdum við kvikmyndahús Sambíóanna í Egilshöll. Nú þegar er ýmiskonar starfsemi í höllinni, s.s. spark- og tennisvellir, skautasvell, íþróttasalir, Heilsuakademían og skrifstofur. Í höllina koma daglega um 1.360 gestir. Í nóvember opnar kvikmyndahúsið og áætlað er að um 1.000 bíógestir sæki bíóið á degi hverjum.
Má því reikna með um 2.400 gestum daglega, miðað við þá starfsemi sem þá verður í húsinu.
Enn eru um 6.000 m² til ráðstöfunar undir þjónustu, verslun og afþreyingu og Egilshöll býður upp á mikla möguleika.
Margar stærðir af leiguhúsnæði eru í boði, jafnt innan dyra sem utan.
Valkostir sem standa rekstraraðilum til boða:
- Leiga á aðstöðu í sérrýmum.
- Leiga á aðstöðu á sameiginlegum svæðum.
- Aðstaða án útleigurýmis, s.s. sala á einstökum viðburðum.
Á fundinum gefst áhugasömum tækifæri til kynna sér aðstæður og útboðsferlið nánar.
Forvalsgögn
Nánari upplýsingar á útboðssíðu VSÓ Ráðgjafar
Auglýsingar
Fylgirit
Kynningarmyndband

Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
