Reginn ehf. undirritaði í dag kaupsamning við Atafl ehf. vegna sölu á Mýrargötu 26, 101 Reykjavík.
Atafl hyggst aðlaga bygginguna að breyttum markaðsaðstæðum þar sem fyrirhuguðum lúxusíbúðum verður fækkað og í staðinn koma hefðbundnari íbúðir fyrir almenna kaupendur.
Breytingar á hönnun hússins hafa verið í undirbúningi með arkitektum. Nú fer þessi vinna á fullt og markmiðið er að geta hafið vinnu við framkvæmdir á þessu ári og er áætlað að verktíminn verði um 2 ár. Reikna má með að þegar framkvæmdir verða komnar á fullt skrið að þá starfi yfir 50 manns að jafnaði við verkið.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.