Undirritaður hefur verið samningur um kaup á fimleikaáhöldum og búnaði fyrir nýtt fimleikahús sem er í byggingu við Egilshöll. Að lokinni verðkönnun var boð Altís ehf. metið hagstæðast að teknu tilliti til verðs og gæða. Altís er rótgróið fyrirtæki sem flutt hefur inn íþróttabúnað um árabil og rekur m.a verslun að Bæjarhrauni 8 í Hafnarfirði. Verkís var ráðgjafi Regins við verðkönnun og samningagerð vegna verksins.
Á myndinni eru frá hægri Einar Sigurðsson stjórnarformaður Altís, Katrín B. Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Egilshallar og Bjarni Jónsson tæknifræðingur hjá Verkís.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.