Almennar fréttir / 14. febrúar 2012

Endurnýjaður leigusamningur: Kvos hf. í Héðinsgötu 2

Gengið hefur verið frá endurnýjun á leigusamningi við Kvos hf. vegna húsnæðis að Héðinsgötu 2, 105 Reykjavík. Kvos hf. er eignarhaldsfélag í prentiðnaði og skyldum rekstri. Meðal eigna Kvos er Prentsmiðjan Oddi. Húsnæðið er 4786 m2 og er samningurinn til 5 ára með forleigurétti.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.