Almennar fréttir / 21. nóvember 2012

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. sýknað af kröfum þrotabús Norðurturnsins

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hefur verið sýknað af kröfum þrotabús Norðurturnsins með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag 21.11.2012.

Skiptastjóri þrotabús Norðurturnsins ehf., fyrrum systurfélags Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. stefndi Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. til greiðslu kröfu að fjárhæð 1.300.000.000 kr. með dráttarvöxtum frá og með 30. mars 2009 til greiðsludags, byggt á því að Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafi undirgengist skuldbindingu um að leggja til þá fjármuni til byggingar fasteignar við Smáralind, svokallaðs Norðurturns.

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafnaði þeirri kröfu um að félaginu bæri að greiða hluta byggingakostnaðar á þeirri forsendu að engar samþykktir finnist í gögnum félagsins fyrir þátttöku í byggingakostnaðinum, með dómnum er það viðhorf  staðfest. Ekki liggur fyrir hvort málinu verður áfrýjað.

Þess ber að geta að í tengslum við skráningu Regins hf. á markað sl. vor þá gaf Landsbankinn hf. út skaðleysisyfirlýsingu til handa Eignarhaldsfélagi Smáralindar ehf., dótturfélagi Regins hf., vegna  dómsmálsins, þannig að niðurstaða þess hefði engin áhrif á félagið, þar sem Landsbankinn hf. myndi taka yfir greiðsluskyldu gagnvart stefnanda ef til hennar kæmi.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.