Í dag 4. nóvember afhenti Kvikmyndahöllin ehf., dótturfélag Regins, Sambíóunum húsnæði undir nýtt kvikmyndahús í Egilshöll.
Eftir undirritun leigusamnings við Sambíóin var hafin framkvæmd við að ljúka við byggingu kvikmyndahússins, en gerður var alverksamningur við Sveinbjörn Sigurðsson hf. sem sá um alla hönnun og framkvæmd á húsinu.
Með opnun glæsilegasta kvikmyndahúss landsins í Egilshöll, er stigið stórt skref í þá átt að ljúka við að gera Egilshöllina að þeirri afþreyingarmiðstöð sem lengi hefur verið stefnt að.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.