Almennar fréttir / 25. september 2013

Dressmann XL og Skífan opna verslanir í Smáralind.

Dressmann á Íslandi mun opna nýja verslun í Smáralind í vikunni en um er að ræða Dressmann XL, þá einu sinnar tegundar á Íslandi. Verslunin býður upp á herrafatnað í stærðum 2XL-9XL. Dressmann XL er staðsett á 1. hæð Smáralindar á móts við verslun Nova.

Skífan mun einnig opna verslun á næstunni á 1. hæð Smáralindar. Verslunin verður staðsett á milli Boyz og GS skór. Skífan býður upp á fjölbreytt úrval tónlistar, kvikmynda og tölvuleikja.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.