Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. september 2014 var samþykktur af stjórn þann 25. nóvember.
· Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna.
· Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 2.183 milljónir króna.
· Hagnaður eftir tekjuskatt nam 1.182 milljónum króna.
- Fjárfestingareignir voru metnar á 52.140 milljónir króna
· Vaxtaberandi skuldir voru 32.251 milljónir króna í lok tímabilsins samanborið við 24.837 milljónir kr. við árslok 2013.
· Handbært fé frá rekstri nam 1.049 milljónum króna.
· Eiginfjárhlutfall er 32%.
· Hagnaður á hlut var 0,86 samanborðið við 0,84 árið áður.
Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa við lok september er 647.
Rekstur og afkoma
Afkoma Regins á tímabilinu var góð og í ágætu samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 3.458 milljón króna og þar af námu leigutekjur 3.065 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tíma fyrra árs er um 18%. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir var 2.183 milljónum króna og hefur aukist um 19% frá sama tíma fyrra árs.
Eignasafn og efnahagur
Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok september 2014 átti Reginn 53 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var um 223 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins var 97% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.
Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörtímabils í tengslum við gerð árshluta og ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á tímabilinu er 630 milljónir króna.
Kynning
Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar miðvikudaginn 26. nóvember kl. 08:30 í Listasafni Íslands, Fríkirkjuvegi 7 á 2. hæð. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri félagsins mun kynna afkomu þriðja ársfjórðungs 2014. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið: fjarfestatengsl@reginn.is.
Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/7395499fa351456298b9f99b0f1515051d

Hverfahleðsla við Smáralind

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
