Fimmtudaginn 2. mars stóð Reginn fyrir kynningu á Hafnartorgi, og þeim tækifærum sem felast í verslun og þjónustu í hjarta Reykjavíkur. Um er að ræða leigurými fyrir m.a. verslanir og veitingahús sem áætlað er að afhenda um mitt ár 2018.
Leigutakar verða valdir með það fyrir augum að skapa spennandi blöndu mannlífs og fjölbreyttra verslana þar sem H&M verður í þungamiðju aðdráttaraflsins.
Á heimasíðu Regins er að finna upplýsingar um verkefnið og umsóknarferlið fyrir áhugasama aðila.
15.
maí

Hverfahleðsla við Smáralind
Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
10.
maí

Reginn hagnast um 3,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi - EBITDA hækkar um 11,2%
8. maí sl. kynnti Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins uppgjör fyrstu þriggja mánaða ársins 2024 á rafrænum kynningarfundi sem var sendur út í beinu streymi.
19.
apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars
Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.